ID: 9492
Date of birth : 1855
Place of birth : S. Þingeyjarsýsla
Date of death : 1934
Helga Jórunn Jónsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu 26. júlí, 1855, d. í Saskatchewan 19. október, 1934.
Maki: Sigurjón Kristófersson fæddist í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba 18. október, 1920.
Börn: 1. Sigurður f. 1876 2. Þorgerður Ólöf f. 1882.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og námu land í Argylebyggð. Að manni sínum látnum bjó Helga hjá dóttur sinni, Þorgerði Ólöfu, fyrst í Arborg en seinna í Bredenbury í Saskatchewan. Sigurður sonur Helgu varð prestur og þjónaði lengi í Saskatchewan, betur þekktur í vesturíslensku samfélagi sem séra Sig. S. Christopherson.
