
Ingunn Jónatansdóttir Mynd VÍÆ III
Ingunn Jónatansdóttir fæddist 15. júní, 1851 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 10. apríl, 1929 í Winnipeg.
Maki: 1869 Hrólfur Matthíasson f. árið 1840 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba árið 1913.
Börn: 1. Þorsteinn f. 1870 2. Sesselja f. 1874 3. Jóhanna f. 1878 4. Þorgrímur Gunnar f. 4. október, 1879, d. 28. september, 1907 í Manitoba 5. Jónína f. 1884 6. Valgerður f. 1890. Eitt barn þeirra dó í æsku.
Hrólfur og Ingunn fluttu vestur árið 1903 með Valgerði. Af börnum Hrólfs frá fyrra hjónabandi fóru vestur Laufey árið 1900 og Inga Guðrún árið 1888. Jónína fór árið 1904, Þorgrímur eftir 1901 og Jóhanna árið 1912. Óljóst hvaða ár Þorsteinn flutti vestur, Sesselja bjó alla tíð á Íslandi. Þau settust að í Manitoba og bjuggu fyrstu tvö árin í Glenboro, fóru svo norður á Winnipeg Beach og bjuggu þar.
