Jónasína Guðmundsdóttir

ID: 10482

Jónasína María Guðmundsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 6. júlí, 1884.

Maki: 1921 Árni Soffonías Jósefsson f. í Manitoba 1. júlí, 1884, d. 3. ágúst, 1922 í bílslysi.

Börn: 1. Sylvia f. 2. desember, 1922, d. 24. október, 1943.

Jónasína flutti til Vesturheims árið 1905 og fór til móðursystur sinnar í Marshland í Manitoba. Þaðan lá leið hennar til Winnipeg þar sem hún vann á saumaverkstæði í 15 ár. Flutti þá til Langruth þar sem hún bjö eftir það. Árni var sonur Jósefs Helgasonar og Guðrúnar Árnadóttur á Big Point tanga vestan við Manitobavatn. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum en flutti svo til Langruth þar sem hann opnaði og rak fyrstu verslun í þorpinu árið 1910. Hann var í kanadíska hernum frá 1916-1919.