
Páll Jóhannsson Mynd Brot
Páll Jóhannsson fæddist 2. nóvember, 1851 í Suður-Þingeyjarsýslu. Dáinn í Mountain í N. Dakota árið 1934. Ríkisstjóri í N. Dakota, John Burk að nafni, heiðraði hann fyrir vel unnin störf í þágu samfélagsins og gaf honum titilinn Colonel. Eftir það var hann alltaf Col. Paul Johnson.
Maki: 1875 Guðleif Jónsdóttir f. 1849 í Gullbringusýslu, d. 1887 í N. Dakota.
Börn: 1. Jón f. 8. febrúar, 1876 í Gimli 2. Anna f. 22. apríl, 1883, d. 1908.
Páll flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1873 og bjó í Toronto í tvö ár. Árið 1875 fluttu þau Páll og Guðleif til Nýja Íslands þar sem þau bjuggu til ársins 1879. Fluttu þá suður í Pembinabyggð í N. Dakota. Guðleif andaðist hér árið 1887 en Páll hélt áfram búskap til ársins 1895. Þá seldi hann land sitt og flutti vestur í Akrabyggð þar sem hann bjó önnur sjö ár en þá flutti hann í þorpið Cavalier. Árið 1906 flutti hann svo til Mountain þar sem hann bjó eftir það.
