ID: 8565
Date of birth : 1878

Sigurður Jónsson Mynd VÍÆ II
Sigurður Jónsson fæddist í S. Múlasýslu 19. nóvember, 1878.
Ókvæntur og barnlaus.
Sigurður byrjaði ungur að sækja sjóinn, fór svo til Danmörku og lærði m.a. járnsmíði. Fór þaðan til Íslands árið 1902 en ári síðar sigldi hann til New York. Var í Bandaríkjunum frá 1903-1912 flutti þá vestur til Manitoba og settist að í Winnipeg. Hann var í kanadíska hernum árin 1916-19. Heimkominn vann hann landbúnaðarstörf víðs vegar í Manitoba.
