Skúli Jónsson

ID: 13127
Date of birth : 1875
Place of birth : N. Múlasýsla
Date of death : 1962

Skúli Jónsson Mynd VÍÆ II

Guðrún Einarsdóttir Mynd VÍÆ II

Skúli Jónsson fæddist 11. mars, 1875 í N. Múlasýslu. Dáinn 23. mars, 1962. Skuli Johnson vestra.

Maki: 17. júní, 1920 Guðrún Einarsdóttir f. 18. september, 1883 í Barðastrandasýslu.

Börn: 1. Stefán Kristinn f. 10. maí, 1922 2. Guðrún Lavína f. 9. júní, 1925.  Guðrún átti dóttur úr fyrra hjónabandi: Margrét Fipping f. 5. desember, 1916 í Winnipeg.

Skúli fór vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1892. Hann flutti í Þinvallabyggð í Saskatchewan, þaðan til White Sands og loks í Vatnabyggð. Hann nam land í Foam Lake byggð. Þegar hann hætti búskap flutti hann til Point Roberts í Washington þar sem hann dvaldi eitthvað áður en hann fór til Blaine. Dvaldi síðustu 11 ár sín í Stafholti í Blaine. Guðrún fór vestur til Winnipeg árið 1905 en þar var fyrir bróðir hennar Jón Sigurður sem skrifaði sig Gillies í Vesturheimi og var kaupmaður.