ID: 18474
Born west
Date of birth : 1898

Aldís A Jakobsdóttir Mynd VÍÆ III
Aldís Anna Jakobsdóttir fæddist í Muskoka í Ontario 26. september, 1898. Dáin í fylkinu 4. febrúar, 1958.
Maki: Jon Olsen. Upplýsingar vantar um hann og fjölskyldu hans.
Börn: 1. Orland 2. Edith 3. Harry 4. Dorothy 5. Gordon.
Aldís Anna var dóttir Jakobs Einarssonar og Jórunnar Pálsdóttur, landnema í Muskokabyggð í Ontario.
