
Björn Mathews Mynd VÍÆ V

Guðrún Guðmundsdóttir Mynd VÍÆ V
Björn Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 19. ágúst, 1871. Dáinn í Manitoba 6. september, 1948.
Maki: 22. júlí 1898 Guðrún Guðmundsdóttir f. 11. desember, 1875 í Borgarfjarðarsýslu, d. 1961.
Börn: 1. Otto Wathne f. 1899, d. 1977 2. Sigurður Jón f. 1900 3. Aðalbjörg f. 11. júní, 1904 4. Guðmundur f. 1908, d.1928 5. Margrét f. 14. júní,1902.
Björn var sonur Jóns Metúsalemssonar og Stefaníu Stefánsdóttur er vestur fluttu 1887 og settust að í Siglunesbyggð í Manitoba. Björn byrjaði búskap í Birkey, eyju í Manitobavatni en flutti þaðan í Siglunesbyggð og nam land við hliðina á föður sínum og bræðrum. Hann var mikill samfélagsmaður og hjálpaði nýkomnu löndum sínum að hefja búskap. Hann byggði sögunarmyllu og seldi timbur í byggðinni á miklu lægra verð en gerðist annars staðar í fylkinu. Allir reistu þar timburhús nema Björn, hann byggði sér vandað steinhús. Loks má geta þess að hann rak þar verslun um skeið. Ástæðan fyrir nafni fyrsta sonar Björns var sú að hann hafði svo miklar mætur á hinum norsk-íslenska landkönnuði og skírði því son sinn í höfuðið á landkönnuðinum. Árið 1925 fluttu Björn og Guðrún til Oak Point í fylkinu og bjuggu þar til æviloka.
