ID: 20723
Born west
Date of birth : 1918
Doris Sylvia Sundquist fæddist 1. febrúar, 1918 í Saskatoon.
Maki: 24. apríl, 1942 Rudolph William Sundquist f. 7. apríl, 1918.
Börn: 1. Allen 2. Sharon.
Doris var dóttir Finnboga Jónssonar og Elsie Grace Hage, hún átti eina systur, Sarah Dorothy, f. 1916, d. sama ár. Doris og Rudolph voru bændur við Kandahar í Saskatchewan en meðfram búskapnum unnu þau að mikilli héraðslýsingu á vesturhluta Vatnabyggða. Er það einstök lýsing á landnámssögu héraðsins og þjóðarbrotanna sem það byggðu. Þar er þáttur Íslendinga mestur því þeir voru fjölmennasti landnemahópurinn. Þetta starf þeirra þykir enn mikilvægasta lýsing mannlífsins, búskaparháttu og fl.
