
Dr Böðvar Bjarki Jakobsson Mynd VÍÆ IV
Dr. Böðvar Bjarki Jakobsson fæddist í Manitoba 20. október, 1926. Dáinn 5. október, 1982.
Maki: Sigrún Borga Sigurðsson f. 14. janúar, 1928 í Manitoba.
Börn: 1. Kristine Inga f. 26. oktpber, 1951 2. Gestur Owen f. 26. maí, 1953 3. Thora Louise f. 8. janúar, 1955 4. Irene Alda f. 28. mars, 1956 5. Karl Douglas f. 5. ágúst, 1957 6. Glen Eric f. 25. nóvember, 1958 7. Alma Lynn f. 18. ágúst, 1960 8. Lorna Susan f. 25. júní, 1962.
Dr. Böðvar var sonur Böðvars H. Jakobssonar og Guðlaugar Eyjólfsdóttur landnema í Nýja Íslandi í Manitoba. Hann lauk prófi í læknisfræði frá University of Manitoba í Winnipeg árið 1954. Hélt því námi áfram fyrst í Deer Lodge spítala og svo Grace spítala, báðir í Winnipeg. Sigrún var dóttir Kristjóns Sigurðssonar og Indiönu Sveinsdóttur landnema í Geysisbyggð í Manitoba. Hún lauk B.A. prófi frá University of Manitoba í Winnipeg árið 1948. Hélt áfram námi nú í verslunarskóla í borginni og lauk þar námi 1950. Meir um Dr. Böðvar í Atvinna að neðan.
