Eiríkur Bjarnason

ID: 19428
Date of birth : 1881
Place of birth : Húnavatnssýsla
Date of death : 1956

Eiríkur Bjarnason fæddist í Húnavatnssýslu 13. maí, 1881. Dáinn í Vatnabyggð 12. júlí, 1956. Eric B. Stephanson vestra. Eirikur Bjarnason “Eric” Stephanson

Maki: Þorbjörg Þorvarðardóttir f. 1887 í N. Dakota, d. 1969. Thorbjorg Stephanson vestra.

Börn: 1. Kristine 2. Eric Baldvin f. 1923, d. 1996 3. Stephan Douglas f. 1926, d. 2000 4. Harold Johann f. 1927.

Eiríkur var sonur Bjarna Stefánssonar og Elínar Eiríksdóttur. Heimildir vestra (Almanak t.d.) segja Eirík vera Björnsson.  Þorbjörg var dóttir Þorvarðar Einarssonar og Kristínar Gísladóttur í Pembina, N. Dakota. Eiríkur keypti land nærri Kandahar í Vatnabyggð, seldi það og flutti á land nærii Elfros.