ID: 13298
Date of birth : 1874
Place of birth : N. Múlasýsla
Date of death : 1959

Eiríkur Jónsson Scheving Mynd VÍÆ1
Eiríkur Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 11.nóvember, 1874. Dáinn í Manitoba 23. maí, 1959. Scheving vestra.
Ókvæntur og barnlaus.
Eiríkur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889. Bjó þar í tvö ár en flutti 1891 til Lundar. Hann var blindur frá 2ja ára aldri og bjó hjá frænku sinni, Björgu Högnadóttur og hennar manni, Birni Björnssyni í Laufási í Lundarbyggð. Hann var afbragðs trésmiður og margir velgerðir munir hans hafa varðveist vestra.
