ID: 13941
Date of birth : 1850
Place of birth : S. Múlasýsla
Gísli Jónsson fæddist árið 1850 í S. Múlasýslu. Johnson vestra.
Maki: 1) Guðný Magnúsdóttir f. 1849 í N. Múlasýslu. 2) Þóra Gísladóttir f. 2. október, 1857 í Árnessýslu.
Börn: Með Guðnýju: 1. Sigríður f. 1883 2. Sigurður f. 1884 3. Þórunn f. 1885 4. Magnús f. vestra.
Gísli og Guðný fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Þau námu land í Þingvallabyggð í Saskatchewan þar sem Guðný lést nokkru síðar. Gísli flutti til Winnipeg og síðar til Glenboro í Argylebyggð. Hann settist að á Big Point árið 1897 og bjó í byggðinni til ársins 1919. Þá seldi hann lönd sín og hús og flutti til Winnipeg. Þaðan nokkru seinna til Gimli en árið 1921 var hann sestur að í Langruth.
