Halldóra S Magnúsdóttir

ID: 20713
Date of birth : 1884
Date of death : 1965

Halldóra S Magnús-dóttir Mynd VÍÆ V

Halldóra Sigríður Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík 3. janúar, 1884. Dáin 4. mars, 1965 í Reykjavík.

Maki: 7. nóvember, 1906  Stefán Pétur Sigurjónsson f. í N. Múlasýslu 14. október, 1878, d. í Reykjavík, 4. júlí, 1953.

Börn: 1. Ingólfur Örn f. 6. september, 1907 2. Kári Haukur f. 4. júní, 1911, d. 2. október, 1982 3. Magnús Már f. 21. október, 1916.

Halldóra og Stefán settust að í Winnipeg þar sem Stefán vann hjá íslenskum blikksmið, Gísla Goodman. Þegar Fyrri Heimstyrjöldin hófst vildu þau vera öruggari og fluttu 1915 vestur til Saskatchewan þar sem Stefán var með blandaðan búskap til ársins 1934. Þá fór Halldóra með soninn Magnús heim til Íslands. Flutti svo öll fjölskyldan þangað, Stefán síðastur árið 1937.