
Hallfríður Melsted Mynd VÍÆ IV
Hallfríður Melsted fæddist 29. október, 1906 í Mountain, N. Dakota. Freda Griffiths í hjónabandi. Þau skildu.
Maki: 2. ágúst, 1958 LeRoy Griffiths f. 2. febrúar, 1910.
Barnlaus.
Hallfríður var dóttir Sigurðar Júlíusar Magnússonar Melsted og Rósu Jóhannesdóttur, landnema í Mountain, N. Dakota. Hún lauk þar grunnskólanámi og lauk svo prófi í State Teachers College í Valley City í N. Dakota árið 1929 og áfram menntaði hún sig. Gekk í San Francisco State College og lauk þar námi átið 1953. Eftir nám gerðist hún kennari, kenndi í skólum í N. Dakota í 10 ár, seinna í Utah og Wyoming. Settist svo að í Kaliforníu og vann í Anglo California Bank í San Francisco 1946-1950. Fór það ár aftur að kenna og starfaði við ýmsa skóla í Oakland í Kalifornia. LeRoy var sjómaður og var vélstjóri á skipum Bandaríkjahers.
