Haraldur Sigurgeirsson

ID: 8636
Date of birth : 1871
Date of death : 1911

Haraldur Sigurgeirsson Mynd VÍÆ IV

Haraldur Sigurgeirsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 20. janúar, 1871. Dáinn í Manitoba 28. september, 1911.

Ókvæntur og barnlaus.

Haraldur fór til Vesturheims árið 1888, samferða móður sinni, Ingibjörgu Jónsdóttur og systkinum. Haraldur var ekki gamall þegar í ljós kom mikill áhugi hans á tónlist. Hann lærði á hljóðfæri.  Hann samdi sönglög og orti. Eitt og annað kom á prent vestra.  Hann bjó fyrst með móður sinni en svo með systur sinni Jakobínu og Jónasi, hennar manni, sem bjuggu á Sunnuhvoli á Mikley.