Helgi V Friðbjörnsson

ID: 10028

Helgi og Stefanía með fjögur elstu börnin. Mynd WtW

Helgi Valdimar Friðbjörnsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1867. Dáinn í Lundarbyggð 18. apríl, 1924. Oddsaon vestra.

Maki: Stefanía Torfadóttir f. 1869 í N. Múlasýslu, d. 18. maí, 1933.

Börn: 1. Sigurður 2. Oddur 3. María 4. Torfi 5. Marsilena (Lena) 6. Una Sveinbjörg 7. Júlíana Emily 8. Þórunn Elísabet 9. Friðrik (Fred) 10. Helgi. Friðrik og Helgi drukknuðu í Manitobavatni 21. nóvember, 1930.

Helgi Valdimar fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Friðbirni Oddssyni og Katrínu Sigurðardóttur árið 1883. Þau bjuggu fyrstu árin í borginni en fluttu í Lundarbyggð árið 1888. Stefanía flutti vestur til Winnipeg árið 1885.  Helgi og Stefanía námu land í Lundarbyggð árið 1891.