
Jakob Jónsson Mynd VÍÆ I
Jakob Jónsson fæddist í Vopnafirði 13. apríl, 1875. Dáinn í Winnipeg 18. maí, 1951. Vopnfjörð vestra.
Maki: 31. mars, 1900 Dagbjört Elíasdóttir f. í Hnappadalssýslu 28. júní, 1878.
Börn: 1. Axel f. 8. janúar, 1902 2. Ásrún f. 12. september, 1903 3. Björgvin Davíð f. 1. mars, 1907 4. Ólöf f. 22. mars, 1912 5. Valtýr (Walter) f. 1. júní, 1918 6. Victor d. 1922 í húsbruna.
Jakob flutti vestur til Manitoba árið 1900 og settist að í Víðinesbyggð í Nýja Íslandi. Þaðan lá svo leið fjölskyldunnar til Gimli en árið 1910 keyptu þau mjólkurbú í Winnipeg og bjuggu þar eftir það. Dagbjört fór til Vesturheims árið 1881 með foreldrum sínum, Elíasi Kjærnested og Ólöfu Davíðsdóttur. Þau settust að í Nýja Íslandi og bjuggu í Laufási alla tíð.
