Jón B Jónsson

ID: 11534
Date of birth : 1862
Place of birth : N. Múlasýsla
Date of death : 1949

Jón Benedikt Jónsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1862. Skrifaði sig gjarna John B. J. Post. Dáinn í Saskatchewan árið 1949.

Maki: Kristín Jónína Jónsdóttir f. 1869 í N. Múlasýslu. Jensína (Sena) Kristín í vesturíslenskum heimildum.

Börn: 1. Ragnhildur 2. Karitas Guðrún f. 1889 3. Erika (Emma) Ingibjörg f. 1891 4. Josephine Halldóra (Dora) f. 1893  5. Ellen (Ella) f. 1895  6. John Ólafur (Oli) Johnson f. 6. september, 1897  7. Oline (Lena) f. 1899  8. Sigurjón (Sam) f. 1902  9. Barney (Björn) Franklin f. 1904  10. Violet Mary f. 1906 11. Loretta May Johnson f. 1906 12. Lilja Johnson f. 1909.

Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum Jóni Sölvasyni og Kristborgu Stefánsóttur. Þau fóru til Mountain í N. Dakota. Þaðan flutti Jón árið 1894 í Roseaubyggðina í Saskatchewan þar sem hann bjó til ársins 1907 en þá flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan og nam land í svokallaðri Sleipnirbyggð. Hann, fyrstur Íslendinga, tók að sér póstflutninga frá Grand Forks til Mountain og var gjarnan nefndur Jón póstur og þaðan kom svo nafnið Post. Kristín fór vestur með foreldrum sínum árið 1876 og fóru þau til Nýja Íslands og þaðan til N. Dakota.