Jón Einarsson

ID: 3441
Date of birth : 1849
Place of birth : Hnappadalssýsla
Date of death : 1912

Jón Einarsson, Steinvör Guðmundsdóttir og börn. Mynd SÍND

Jón Einarsson fæddist í Hnappadalssýslu árið 1849. Dáinn í Hallson, N. Dakota 5. maí, 1912. Hnappdal vestra.

Maki: 5. júní, 1885 Steinvör Lilja Guðmundsdóttir f. 10. apríl, 1853 í Húnavatnssýslu, d. í Hallson, N.Dakota 4. september, 1949.

Börn: 1. Hallur 2. Jón 3. Eggert 4. Einar 5. Ingiríður 6. Lilja. Önnur tvö áttu þau sem bæði dóu ung.

Jón fór vestur til Ontario í Kanada um haf með móður sinni  og bróður og systur árið 1876. Þar var þá fyrir Einar Jónsson faðir hans. Þau fluttu austur í Markland í Nova Scotia og þaðan til N. Dakota árið 1881. Hann settist að í Beaulieubyggð vestur af Hallson. Steinvör flutti vestur til N. Dakota árið 1883.