Jónas G Jónsson

ID: 17298
Born west
Date of birth : 1901

Jónas Gestur Jónsson Mynd VÍÆ I

  Jónas Gestur Jónsson fæddist í Geysisbyggð í Nýja Íslandi 5. mars, 1901. Dáinn 19. apríl, 1959.  Skúlason vestra.

Maki: 2. júlí, 1932 Hrund Adamsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 16. júní, 1908.

Börn: 1. Sigrún Ada f. 5. maí, 1934 2. Guðrún Jónína f. 2, júní, 1936 3. Kristín Hólmfríður f. 26. júlí, 1938 4. Hermann Jónas f. 26. nóvember, 1939 5. Þór Adam f. 20. ágúst, 1941.

Jónas var sonur Jóns Skúlasonar og Guðrúnar Jónasdóttur sem fluttu vestur árið 1890. Þau settust að í Geysisbyggð í Nýja Íslandi. Þar hét Fagrahlíð. Jónas lauk prófi í landbúnaðardeild Manitobaháskóla og tók strax við búi föður síns þar sem hann stundaði landbúnað. Hann var vel virkur í samfélagsmálum landa sinna í byggðinni, formaður lestrafélagsins Geysis, skrifari þess og féhirðir. Enn fremur í safnaðarnefnd sveitarinnar í 30 ár. Tók líka mikinn þátt í félagslífi. Hrund var dóttir séra Adams Þorgrímssonar prests í Lundar í Manitoba og Sigrúnar Jónsdóttur. Hrund flutti til Manitoba árið 1919.