Kristín Friðbjarnardóttir

ID: 8598
Date of birth : 1893

Kristín Friðbjarnardóttir Mynd VÍÆ III

Kristín Friðbjarnardóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 28. febrúar, 1893.

Maki: 3. október, 1919  Olgeir Gunnlaugsson f. 4. desember, 1890 í Pembinasýslu í N. Dakota.

Börn: 1. Olga Jóhanna f. 3. október, 1920 2. Friðbjörn Halldór f. 7. ágúst, 1924 3. Sylvía Kristín f. 7. janúar, 1928 4. Guðrún f. 10. nóvember, 1929.

Kristín flutti einsömul vestur árið 1910 og settist að í Winnipeg. Þar hóf hún störf á General Hospital árið 1911, færði sig yfir til Eatons verslunarkeðjuna þar sem hún afgreiddi í verslun þess í borginni. Seinna batt hún inn bækur félagsins árin 1913-1919. Hún lét málefni landa sinna í Kanada sig miklu varða alla tíð, starfaði í deildum Þjóðræknis-félagsins í Winnipeg, Blaine í Washington og Vancouver. Olgeir var sonur Ófeigs Gunnlaugssonar og fyrri konu hans, Sulime Jóhönnu Stefánsdóttur landnema í N. Dakota. Olgeir byrjaði snemma að vinna fyrir sér, var bæði í Minnesota og vestur í Washington. Árið 1914 flutti hann til Kanadaog gekk í kanadíska herinn. Var í Evrópu til ársins 1919, kom þá til Kanada og gerðist bóndi í Vatnabyggð í Saskatchewan skammt frá Wynyard. Var alla tíð góður samfélagsþegn, vann að málum er vörðuðu jafnt alla Kanadamenn og einnig sérmálum landa sína. Hann flutti vestur að Kyrrahafi og þar skipulagði hann fyrstu hópferð Íslendinga frá vesturströnd Kanada til Íslands árið 1963.