Kristvin Sveinson

ID: 20662
Date of birth : 1905
Place of birth : Manitoba

Helga Margrét, Eiríkur með kjörson sinn, Kristvin. Mynd VÍÆ V

Kristvin Helgason fæddist í Manitoba 17. nóvember, 1905. Chris vestra.

Maki: 10. nóvember, 1937 Alice Jocelyn Helgason

Börn: 1. Adrian Eric 2. Dean Eugene.

Kristvin var sonur Helga Sveinssonar í Bárðardal og konu hans, Kristínar Jónsdóttur frá Hofsstöðum í Borgarfirði en kjörsonur Eiríks Helgasonar og Helgu Margrétar Bachmann. Kristín dó 30. nóvember, 1905 og var Kristvin þá nýfæddur. Um það leyti fluttu báðar þessar fjölskyldur vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land á svipuðum slóðum. Kristvin gekk menntaveginn, lauk grunn-og manntaskólanámi í Wynyard og flutti til Bandaríkjanna árið 1928 og gerðist ríkisborgari. Hann settist að í Illinois og stundaði þar háskólanám bæði í De Paul og Park Forest. Hann varð Mental Health Therapist og vann bæði við það og kenndi líka sállækningar. Hann unni íslenskum uppruna sínum var í Íslendingafélaginu í Chicago og ritari þess 1967-1972.