Ólafur Grímsson

ID: 8956
Date of birth : 1897

Ólafur Stefán Grímsson fæddist 19. febrúar, 1897 í S. Þingeyjarsýslu. Laxdal vestra.

Maki: 2. júní, 1928 Ólöf Sigríður Pétursdóttir f. í N. Dakota 10. desember, 1903.

Börn: 1.  Allan Ólafur f. 3. október, 1931 2. Solin Grace f. 23. júní, 1936.

Ólafur var sonur Græims Jónssonar og Sveinbjargar Torfadóttur, sem vestur fluttu árið 1907. Hann stundaði nám í Jóns Bjarnasonar skóla og Wesley College í Winnipeg. Gerðist byggingameistari í borginni og vann við að steinsteypa þjóðvegi í fylkinu . Flutti árið 1940 til Washington ríkis á vesturströnd Bandaríkjanna.