ID: 17662
Born west
Date of birth : 1890

Ólína S Magnúsdóttir Mynd VÍÆ II
Ólína Sesselja Magnúsdóttir fæddist í Hallson, N. Dakota 6. janúar, 1890.
Maki: 8. júní, 1909 Jón T. Johnson f. á Gimli, 23. janúar, 1884, d. í Bellingham 21. október, 1950.
Barnlaus.
Ólína fór vestur til Washington árið 1904 með foreldrum sínum, Magnúsi Jósefssyni og Steinunni Ólafsdóttur, sem voru landnemar í Hallson árið 1883. Jón var sonur Jóns Þórðarsonar og Maríu Abrahamsdóttur úr Eyjafirði. Ólína og Jón bjuggu í Blaine í Washington.
