Skúli Jóhannsson

ID: 20668
Date of birth : 1912
Date of death : 1986

Skúli Jóhannsson Mynd VÍÆ V

Skúli Jóhannsson fæddist 9. mars, 1912 í Sveinatungu, Norðurárdal í Mýrasýslu.  Dáinn í Winnipeg 24. nóvember, 1986.

Maki: 10. nóvember, 1939 Erika Pétursdóttir f. í Reykjavík 10. október, 1916.

Börn: 1. Ingibjörg Karen f. 22. ágúst, 1943.

Skúli gekk menntaveginn, nam verslunarfræði í Danmörku og þýskalandi. Þegar heim kom vann hann verslunarstörf og heildsölu. Árið 1955 flutti hann til Winnipeg þar sem hann vann í glerverksmiðju og hætti svo að vinna 1. júlí, 1977. Hann aðlagaðist fljótt samfélagi Íslendinga í borginni og tók mikinn þátt í félagslífi þeirra. Hann var forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi frá 1977 til ársins 1980.