Guðmundur Andrésson
Guðmundur Andrésson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1882. Maki: Matthildur Júlíana Fjelsted. Guðmundur fór vestur með móðursinni, Guðríði Halldóru Jónsdóttur árið 1883. Hún giftist Kristjáni Sigurðssyni vestra og hófu þau búskap í Pine Valleybyggð. Guðríður lést árið 1906 og flutti Guðmundur þá til Winnipeg.
Helga Jónsdóttir
Karólína Guðnadóttir
Sigríður Jónsdóttir
Elísabet Guðmundsdóttir
Lárus Sigurðsson
Ástvaldur Guðjónsson
Ástvaldur Guðjónsson fæddist 7. nóvember, 1887 í Skagafjarðarsýslu. Oft skrifaður Ásvaldur Guðjónsson Ísfeld vestra. Maki: 17.apríl, 1918 Halldóra Eyjólfsdóttir (Eyjolfson) f. 16. ágúst, 1888 í Geysirbyggð. Börn: 1. Eythor 2. Lawrence William. Ásvaldur flutti vestur með móður sinni Sigríði Sigurðardóttir og systkinum sínum, Trausta, Gísla, Sigurði, Árna og Hólmfríði. Bjuggu í Fljótsbyggð. Ástvaldur og Halldóra fluttu til Mozart í Saskatchewan …
