Einar G. Tómasson

ID: 1022
Date of birth : 1867
Place of birth : Árnessýsla
Date of death : 1952

Einar Tómasson og Guðný Þorsteinsdóttir með börn sín fjögur. Fimmta barnið ekki nafngreint í heimildum.

Einar Guðmundur Tómasson fæddist 13. október, 1867 í Árnessýslu. Þau skrifuðu sig Tomasson eða Thomasson vestra

Maki: 1898 Guðný Þorsteinsdóttir f. 23. mars, 1864, d. 18. nóvember, 1958

Börn: 1. Thomas Guðmundur f. 2. desember, 1900 2. Steinunn f. 28. apríl, 1903, d. 11. október, 1936 3. Kristinn Ragnar f. 19. mars, 1906 4. Sigríður f. 18. janúar, 1909.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900 og settist að á Big Point sama ár. Flutti norður í Bluff (Reykjavík P.O.) árið 1904 og þaðan 1909 til Beaver, rétt sunnan við Westbourne. Bjó þar á sínu landi til ársins 1946 en flutti þá til sonar síns, Thomas Guðmundur, sem var bóndi í sömu sveit.